„Ef þú týnist í íslenskum skógi– stattu þá upp. Ef þú getur það ekki- kallaðu þá eftir aðstoð!,“ segir í nýrri auglýsingu fyrir 112 Iceland sem er nýlegt snjallsímaforrit eða „app“ fyrir ferðafólk.
Með forritinu geta ferðamenn kallað eftir aðstoð ef um slys eða óhapp er að ræða. Einnig geta þeir nýtt það til að skilja eftir sig slóð, „brauðmola“, en slíkar upplýsingar geta skipt sköpum ef óttast er um afdrif viðkomandi ferðalanga og leit þarf að fara fram. Ekki er þörf á gagnasambandi til þess að nýta forritið, hefðbundið GSM samband nægir. S
kýrt skal tekið fram að þessum hugbúnaði er ekki ætlað að leysa önnur öryggistæki á borð við neyðarsenda eða talstöðvar af hólmi. Hins vegar er forritið nýja gagnleg viðbót sem nýtist hinum mikla fjölda fólks er notar snjallsíma og þéttir þannig það öryggisnet fjarskipta sem fyrir er í landinu.
Unnið hefur verið að því að markaðssetja forritið fyrir erlenda ferðamenn, en undanfarið hafa björgunarsveitir sinnt fjölmörgum útköllum vegna ferðamanna í vanda, en virðist sem tölurnar haldist í hendur við aukinn fjölda erlendra ferðamanna.
Leiðbeiningar um notkun 112 Iceland
1. Skráðu upplýsingar – notandi skráir inn nafn sitt og nafn og símanúmer nánasta aðstandenda. Þessar upplýsingar eru eingöngu notaðar ef notandi sendir úr forritinu á 112.
2. Skildu eftir slóð – þegar ýtt er á þennan hnapp fer GPS staðsetning síma/notanda ásamt tímasetningu til 112. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar í tengslum við leit og björgun.
3. SOS – þegar ýtt er á þennan hnapp er notandi að kalla á aðstoð því um neyð er að ræða. GPS staðsetning þín fer á 112 og einnig opnast á símtal. Aðstoð er send af stað.
Á meðfylgjandi mynd má lesa um smáforritið. Þar er einnig að finna QR kóða sem vísar á það.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013