Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
17:01 › 5. júlí 2012
Átján ára piltur var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur fyrir manndráp af gáleysi eftir að hafa orðið Eyþóri Darra Róbertssyni að bana við ofsaakstur á gatnamótum Geirsgötu og Tryggvagötu í Reykjavík í ágúst í fyrra.
Var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi en fresta skal fullnustu þeirrar refsingar haldi hann skilorði í tvö ár frá birtingu dómsins. Þá var pilturinn sviptur ökuréttindum í þrjú ár og gert að greiða foreldrum Eyþórs Darra sex milljónir í miskabætur.
Pilturinn var einnig dæmdur til að greiða ákæruvaldinu 700 þúsund krónur vegna sakakostnaðar. Þá þarf hann að greiða 188 þúsund í réttargæsluþóknun og greiðir svo loks verjanda sínum 376 þúsund krónur.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013