Apple hyggst gefa út minni og ódýrari iPad

Óstaðfestar fregnir berast úr tækniheiminum

Apple hyggst gefa út minni og ódýrari iPad undir lok þessa árs, ef að marka má Bloomberg fréttaveituna. Samkvæmt heimildarmönnum miðilsins mun nýja útgáfan hafa minni skjá, átta tommur á lengd og sjö á breidd. Nýja tækið væri semsagt einni tommu styttri, þegar á lengdina er litið.

Þá mun einn heimildarmaður fréttaveitunnar hafa sagt að skjár tækisins verði, andstætt við skjá nýjasta iPadsins, ekki í háskerpu. Tækið muni í staðinn verða nokkuð ódýrara. Athuga ber að Apple hefur ekki staðfest fregnirnar heldur er einungis um heimildarmenn Bloomberg að ræða.

Takmarkið með útgáfu nýja tækisins mun vera að veita Microsoft og Amazon samkeppni, en fyrirtækin bjóða meðal annars upp á mjög ódýrar spjaldtölvur og girnist Apple hlutdeild á þeim markaði.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.