Evrópuþingið felldi í dag hinn svokallaða ACTA-samning með 478 atkvæðum á móti 39. Það er stærsti ósigur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í þinginu frá upphafi.
Samningurinn hefur það að markmiði að koma á alþjóðlegum viðmiðum í baráttunni gegn brotum á höfundarrétti. Auk þess er samningnum ætlað að taka á fölsunum á lyfjum og ýmsum öðrum vörum.
Mörg af stærstu ríkjum heims skrifuðu undir samninginn í fyrra, t.d. Bandaríkin, Kanada, Ástralía, Japan og Suður-Kórea, og mörg Evrópulönd gerðu slíkt hið sama síðastliðinn vetur. Nú er ljóst að samningurinn mun ekki taka gildi innan Evrópusambandsins og markmið hans um alþjóðleg höfundarréttarviðmið á netinu nást því ekki í bili.
Samningurinn hefur verið harkalega gagnrýndur þar eð hann er sagður skerða tjáningar- og netfrelsi almennings og margir óttast að hann geti leitt til ritskoðunar á netinu. Víða í Evrópu hafa verið skipulagðar mótmælagöngur vegna samningsins á undanförnum mánuðum auk þess sem netverjar hafa látið vel í sér heyra. Meðal þeirra sem mótmæltu samningnum hvað mest voru meðlimir hakkarahópsins Anonymous.

Hemmi Gunn fallinn frá