Á laugardaginn hreppti hin sextán ára Ye Shiwen gullið í 400 metra fjórsundi kvenna og bætti eigið met um fimm sekúndur og heimsmetið um rúma sekúndu. Tíminn hennar var langt undir heimsmetinu og því hafa vangaveltur verið um það hvort að hún hafi tekið inn lyf til þess að bæta frammistöðu sína.
„Sagan hefur kennt okkur að í hvert skipti sem við sjáum eitthvað sem við gætum kallað „ótrúlegt“ við frammistöðu einhvers, þá hefur lyfjanotkun alltaf komið við sögu,“ sagði John Leonard, sem er yfirþjálfari bandaríska sundliðsins, við blaðamann Guardian um málið.
Synti hraðar en Lochte
Sagði Leonard að frammistaða Ye minnti hann á austurþýsku sundkonurnar á áttunda áratuginum, sem notuðu lyf reglulega til þess að bæta frammistöðu sína.
Á síðustu fimmtíu metrunum synti Ye hraðar en gullverðlaunahafinn í karlaflokki, Ryan Lochte, sem þykir óvenjulega góð frammistaða. Reyndar var heildartíminn hennar um 23 sekúndum lakari en Lochte og segir þjálfari Ye að hún hafi átt undir högg að sækja í lok sundsins og því lagt sig verulega mikið fram þá, það hafi Lochte ekki gert enda stóð hann sig vel framan af í sundinu og var á góðum tíma.
„Ég myndi aldrei nota ólögleg lyf“
Á níunda áratuginum gerðist það oft að kínverskir sundmenn féllu á lyfjaprófum. En Ye neitar öllum ásökunum um svindl. „Þessi árangur er afleiðing mikillar vinnu og stífrar þjálfunar, ég myndi aldrei nota ólögleg lyf. Kínverska þjóðin hefur hreinar hendur í málinu,“ sagði hún við fréttamenn.
Þjálfari Ye sagðist hafa búist við þessum árangri frá stelpunni og sagði ekkert óeðlilegt við frammistöðu hennar. Allir íþróttamenn á Ólympíuleikunum þurfa að gangast undir víðfeðm lyfjapróf og þeir sem verða uppvísir að því að standa sig óvenjulega vel, miðað við fyrri frammistöðu, geta þurft að þreyta frekari próf.
Það eru ekki allir á sama máli og Leonard í málinu, enda hafa nokkrir fyrrum sundmeistarar lýst yfir stuðningi sínum við Ye. Einnig hefur formaður breska ólympíusambandsins sagt ekkert varhugavert við frammistöðu Ye - hún eigi heiður skilinn fyrir frábæra frammistöðu og fyrir að vera ein hæfileikaríkasta sundkona heims í dag.
Í dag mun hún synda 200 metra sund kvenna en 400 metrunum lauk hún á 4 mínútum og 28,43 sekúndum, hennar persónulega met hafði verið 4 mínútur og 33,79 sekúndur og heimsmetið hafði verið 4 mínutur og 29,45 sekúndur.

Hemmi Gunn fallinn frá