Vinkonan fór að „ganga á veggi“

Ofbeldismenn virðast enn liðnir innan íþróttafélaga

Eygló Harðardóttir þingmaður gagnrýnir vinnubrögð Íþróttafélags Akraness og Stjörnunnar í máli Marks Doninger. Fjallar hún meðal annars um pistil Arnar Gunnarssonar, sem er lögmaður Doninger og ver í pistlinum aðgerðarleysi ÍA í málinu.

„Þetta rifjaði upp gamlar óþægilegar minningar þar sem manneskja sem mér þótti vænt um þurfti að upplifa sambærilega hluti af hendi knattspyrnumanns. Hversu jákvætt það þótti hversu aðgangsharður hann var í vörninni, kannski á grundvelli ofbeldishneigðar sinnar. Hversu mikill glamúr var yfir þessum pilti, alveg þar til vinkona mín fór ítrekað „að ganga á veggi“. Hversu spennandi hann þótti í ljósi hæfileika sinna á knattspyrnuvellinum, alveg þar til hann sat af sér sinn fyrsta fangelsisdóm af mörgum,“ skrifar hún í kjallaragrein í DV.

Þrátt fyrir ofbeldisverkin og þrátt fyrir dóm, þá hafði hinn umræddi fótboltamaður, líkt og Doninger, haldið áfram að spila fótbolta. Þetta var fyrir tuttugu árum síðan og segir hún að miðað við skrif Arnar hafi lítið breyst í þessum málum. Þó hafi það breyst að félög hafi almennt sett sér siðareglur.

„Ekkert segir hins vegar um hvað gerist ef menn brjóta siðareglurnar, því væntanlega telst það að fá dóm fyrir líkamsárás að hafa sýnt ógnandi eða ofbeldisfulla tilburði eða hvað?“

Með samstöðu má breyta til beturs

Eygló segir að samstaða í samfélaginu geti breytt þessu: „Við getum öll sagt hingað og ekki lengra. Þessi hegðun er ekki ásættanleg, er ekki íþróttamannsleg og við viljum hana ekki. Ekki í íþróttahreyfingunni, ekki í samfélaginu.“

Gott dæmi um slíka samstöðu sé átakið Bleiki fíllinn í Vestmannaeyjum. „. Bleiki fíllinn er táknmynd þessa aðgerðaleysis, vanmáttar, þöggunar og kannski „sleggjudómsleysis“ okkar allra þegar við bregðumst ekki við ofbeldi.“

Aðgerðarleysinu þurfi að linna: „Ábyrgðin er ekki okkar á ofbeldinu, en við berum ábyrgð á aðgerðaleysi okkar, þögguninni, með því að bregðast ekki við eða jafnvel réttlæta tilvist bleika fílsins. Hættum að vernda ofbeldismenn.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.