Myndband af hvalabjörgun á Akranesi

Stefán og Hermann drógu strandaða grindhvali

Eins og DV greindi frá fyrr í dag unnu félagarnir Stefán Þór Þórðarson og Hermann Hermannsson það mikla þrekvirki í morgun að vaða í sjóinn við Leyni á Akranesi og koma þar þremur strönduðum grindhvölum til bjargar.

Fréttin hefur vakið talsverða athygli en DV hefur nú fengið myndband af björgunarafrekinu. Var það Valgeir Valgeirsson sem tók meðfylgjandi myndband af því þegar jaxlarnir Stefán og Hermann draga einn hvalinn á sporðinum og bjarga honum þar með úr klettunum.

Sjá einnig:

Knattspyrnujaxl og kraftajötunn komu hvölum til bjargar

Áttavilltir grindhvalir í tugatali við Akranes


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.