Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
14:58 › 30. júlí 2012
Sumarleik DV.is fer brátt að ljúka. Um er að ræða ljósmyndakeppni Sigga Storms þar sem að lesendur geta sent inn sumarlega mynd úr íslenskri náttúru.
Ljósmyndarinn hefur nægt svigrúm og einu skilyrðin eru að myndin tengist sumri og sé tekin á Íslandi. Þá gildir einu hvort myndin er mannlaus eður ei. Það er skilyrði að sá sem sendi myndina inn sé ljósmyndarinn. Í verðlaun er glæsileg Nikon 1j1-myndavél frá Heimilistækjum.
Hér geta áhugasamir tekið þátt í leiknum en skilafrestur er til miðnættis á morgun, 31. júlí.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi