Sænska lögreglan handtók í gær mann sem kveikt hafði í fyrrverandi kærustunni sinni. Tildrög árásarinnar munu vera þau að hann var að skila dóttur sinni til konunnar, sem er barnsmóðir hans, þegar hún sagði honum frá því að hún væri farin að hitta annan mann.
Maðurinn mun hafa brugðist ókvæða við og að sögn sænska Aftonbladet hellti hann bensíni yfir konuna og kveikti í henni. Konan og maðurinn eru á sextugsaldri og mun atvikið hafa átt sér stað að heimili mannsins í bænum Dalarna í Svíþjóð.
Fimm ára dóttir þeirra mun hafa orðið vitni að atburðinum. Konan mun vera illa brunninn og er nú á Linköping háskólasjúkrahúsinu þar sem hlúð er að henni. Henni er haldið sofandi enda áverkarnir alvarlegir.
Blaðið hefur frásögnina eftir nokkrum vinum og kunningjum konunnar en lögreglan hefur lítið gefið út málið, en staðfestir að maður sé í haldi fyrir morðtilraun og grófa líkamsárás, og að þolandi hafi áður verið í ástarsambandi við geranda.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013