„Ef maður sagði eitthvað vitlaust, blótaði eða eitthvað, þá var maður tekinn inn á baðherbergi og skrúbbaður í manni kjafturinn með sápu,“ segir Jón Hlífar Guðfinnuson sem hefur lagt fram kæru á hendur hjónunum Einari Gíslasyni og Beverly Sue Dögg Gíslason.
Jón Hlífar var vistaður á barnaheimili sem hjónin ráku á Hjalteyri við Eyjafjörð á áttunda áratugnum. Heimilið var einkarekið og því sjálfstætt en starfaði með gildi Hvítasunnukirkjunnar að leiðarljósi.
Í viðtali við DV lýsir Jón Hlífar dvöl sinni á heimilinu ítarlega og greinir þar frá miklu andlegu og líkamlegu ofbeldi. Á meðal annarra heimildamanna DV eru fleiri fyrrum vistbörn á heimilinu og ættingjar þeirra auk mæðgna sem búsettar voru á Hjalteyri og áttu sinn þátt í því að heimilinu var lokað.
Elsta systir Jóns Hlífars, Margrét Wium Sigurðardóttir, var fædd árið 1963 og sagði hún frá reynslu sinni af Hjalteyri í skjóli nafnleyndar í Vikunni árið 1998. Margrét lést úr krabbameini árið 2000. Hún minntist þess að martröðin hefði byrjað morguninn eftir að systkinin komu á staðinn. Þá hafi þau verið rifin eldsnemma á fætur og þeim sagt að þau væru „börn djöfulsins“.
Í DV í dag er ítarlega fjallað um málið.


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013