Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:40 › 30. júlí 2012
Íslenskur karlmaður er látinn og tveir erlendir ferðamenn eru alvarlega slasaðir eftir bílaveltu sem varð á Steingrímsfjarðarheiði í gærkvöld. RÚV greinir frá þessu.
Slysið varð um níu leytið í gærkvöldi, Hólmarvíkurmegin við Steingrímsfjarðarheiðina.
Ferðamennirnir tveir eru karl og kona, að því er Vísir greinir frá, og eru þau alvarlega slösuð. Um tíma var óttast að konan myndi ekki lifa af. Þau voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landsspítalann í Fossvogi og eru nú á gjörgæslu. Ekki er hægt að segja nánar til um tildrög slyssins á þessari stundu.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013