Mitt Romney, mótframbjóðandi Barack Obama til embættis forseta Bandaríkjanna, hefur safnað nokkuð hærri fjárhæðum heldur en forsetinn fyrir kosningabaráttu sína.
Þetta hefur leitt til þess að Obama biðlaði til styrktaraðila sinna um að styrkja sig um meira.
Romney, sem er sjálfur milljónamæringur, hafði í maí safnað alls 76 milljónum Bandaríkjadala, (tæplega tíu milljarðir króna) á meðan að Obama hafði safnað 60 milljónum (um sjö og hálfur milljarður króna). Obama hafði því nýverið samband við öflugustu styrktaraðila sína símleiðis.
„Ég er orðinn gráhærður“
„Ég get þetta ekki einn,“ hefur Telegraph eftir Obama, en upptöku af símtalinu var lekið var til fjölmiðla. Hann bað bakjarla sína um að styrkja sig um að minnstu jafn mikið, og helst um meira, en þeir ljáðu honum árið 2008 þegar að hann bauð sig fram gegn McCain.
„Árið 2008 var framboðið mitt nýtt og spennandi. Núna sit ég á forsetastól, ég er orðinn gráhærður. Fólk hefur orðið fyrir vonbrigðum vegna þess að þau sáu fyrir sér gjörvallarbreytingar í þjóðfélaginu um leið og ég tæki við embætti. En það er auðvitað ekki auðvelt að verða við því,“ sagði hann enn fremur á upptökunni.
Sterkt bakland stórfyrirtækja
Joe Trippi, einn af sérfræðingum Demókrataflokksins, segir í samtali við Telegraph að helstu styrktaraðilar flokksins hafi talið sem svo að Obama þyrfti ekki á fjármagninu að halda.
„Fram að þessu héldu flestir Demókratar að Romney gæti aldrei sigrað forsetann, svo þeir töldu sem svo að hann þyrfti ekki á peningunum að halda. En það er að breytast hratt og örugglega,“ hefur blaðið eftir honum.
Obama of mikill sósíalisti
Romney hefur aðgang að gífurlega miklu fjármagni frá stórfyrirtækjum og sjálfstæðum styrktaraðilum og Demókratar vanmátu stórlega getu hans til þess að safna styrkjum. Núna er þannig í pottinn búið að Obama nýtur einungis um 3,4 prósent hærra fylgis en Romney og því er það fjarri lagi að halda því fram að Romney eigi ekki möguleika á því að leggja Obama að velli.
Auðjöfrar hópast að baki Romney, ekki endilega vegna þess að hann er svo gífurlega frambærilegur kandídati, heldur vegna þess að þeim misbýður „sósíalistastefna“ Obama og vilja gera hvað sem er til þess að fella hann.
Á meðal þessara er fjölmiðlajöfurinn Robert Murdoch, sem skrifaði á Twitter að hann vildi að Romney myndi sigra - hann vildi „bjarga okkur frá sósíalismanum“ - og fylgdu þessi skilaboð í kjölfar langrar gagnrýni á Romney.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi