6 ára drengur hélt afa sínum á lífi í tæpan sólarhring

„Sagði mér um 50 þúsund sinnum hversu mikið hann elskaði mig“

Sex ára gamall kanadískur drengur hélt afa sínum á lífi eftir að þeir lentu í slysi við utanvegaakstur í síðasta mánuði.

Það er kanadíska blaðið The Advertiser sem greinir frá þessu en þar kemur fram að hinn fimmtíu og níu ára gamli Walter Small og barnabarn hans Bradley Reid höfðu dvalið í kofa í óbyggðum þegar drengurinn bað afa sinn um að fara með sig einn rúnt.

Það var þá sem ökutækið valt með þeim afleiðingum að fótur afans festist undir því. Bradley reyndi að ýta ökutækinu af afa sínum en gat það ekki.

Þeir sátu fastir í tæpan sólarhring en drengurinn reyndi að ganga eftir hjálp en gat með engu móti ratað. Drengurinn sat því hjá afa sínum og passaði upp á að hann missti ekki meðvitund.

„Ég missti nánast meðvitund vegna sársauka,“ sagði Walter Small við kanadíska fjölmiðilinn. „Bradley hélt mér vakandi og passaði upp að pöddur kæmust ekki í sárið.

Bradley var einnig duglegur að segja afa sínum hversu mikið hann elskaði hann. „Hann sagði mér um 50 þúsund sinnum hversu mikið hann elskaði mig. Það hélt mér gangandi,“ sagði Walter Small.

Eftir því sem á leið þá varð Walter Small vonlítill um að hjálp myndi berast. Hann var farinn að íhuga að skera fótinn af til að bjarga sér og barnabarni sínu. Nærri því sólarhring eftir að ökutækið valt náði drengurinn að stöðva bíl sem átti leið hjá og var þeim komið til bjargar. Walter Small segist eiga barnabarni sínu lífið að launa.

„Hann kvartaði aldrei. Ef hann hefði ekki verið þarna er ég ekki viss um að ég væri á lífi í dag.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.