Reiði vegna auðra sæta á Ólympíuleikunum

Styrktaraðilar nýta ekki frátekin sæti á meðan áhangendur fá ekki miða

Stjórnandi Ólympíuleikanna í London, Sebastian Coe, fullyrðir að áhorfendabekkir á mótsstöðum leikanna séu þétt setnir af íþróttaunnendum.

Þetta sagði hann í samtali við bresku fréttastofuna Sky en myndir af auðum sætaröðum á Ólympíuleikunum í London hafa vakið mikla reiði þeirra sem hefðu vilja fá miða á leikana. Þessar sætaraðir voru fráteknar fyrir Ólympíufjölskylduna svokölluðu en hún samanstendur af fulltrúum Ólympíunefndarinnar, íþróttasambanda og blaðamanna.

Hefur reynst erfitt fyrir hinn almenna áhorfanda að verða sér úti um miða og hafa því þessar myndbirtingar af tómum áhorfendabekkjum vakið mikla reiði. Myndirnar voru teknar af áhorfendabekkjum í sund- og fimleikahöllunum.

Til þess að leysa þennan vanda hafa skipuleggjendur leikanna brugðið á það ráð að fá hermenn og grunnskólanemendur til að fylla bekkina sem voru fráteknir voru meðal annars fyrir styrktaraðila leikanna.

Hafa skipuleggjendur leikanna lagt til að sett verði sú regla fráteknir miðar verði seldir ef þeir hafa ekki verið sóttir þrjátíu mínútum áður en keppni hefst. Ódýrari sætin hafa jafnan verið þétt setin á meðan þau sem eru nærri keppendum eru fremur illa nýtt.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.