Bandaríska stúlkan Nadia Ilse getur ekki beðið eftir að nýtt skólaár hefjist því nú geta skólafélagarnir hennar ekki lengur kallað hana Dúmbó vegna útstæðra eyra. Frá því hún hóf skólagönguna hefur henni verið strítt vegna útlitsins og hefur hún grátbeðið móður sína um að fá að fara í aðgerð.
Þessi fjórtán ára stúlka fékk ósk sína uppfyllta þegar Little Baby Face-sjóðurinn kostaði aðgerðina fyrir hana.
Nadia sagði við bandarísku fréttastofuna CNN að stríðnin hefði gert hana að hlédrægri stúlku.
Eftir að móðir hennar hafði samband við sjóðinn voru eyrun ekki aðeins lagfærð heldur var nefið minnkað og hökunni breytt.
Bandarískir unglingar hafa margir hverjir brugðið á það ráð að leita til lýtalækna til þess að losna undan einelti. Árið 2007 létu 90 þúsund unglingar í Bandaríkjunum lagfæra útlitið, en ekki er hægt að ganga út frá því að þær hefðu allar verið framkvæmdar sökum eineltis.
Nadia segir að það sé ekki eðlilegt að þurfa að fara í lýtaaðgerð til að losna undan einelti. Hún sér þó engan vegin eftir þessu. „Ég lít ótrúlega vel út og það er nákvæmlega það sem ég vildi. Ég elska þetta.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013