„Tröllriðna land - sprungið af spillingu,“ skrifar Herdís Þorgeirsdóttir, doktor í lögum og fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Morgunblaðið í morgun. „Ýmis teikn eru á lofti; atvinnuleysi er gífurlegt, gjáin milli þinga og þjóða dýpkar og kröfur verða háværari um bjargvætti í gervi sterkra leiðtoga,“ skrifar Herdís og segir ástandið vera líkt og í Weimarlýðveldinu og hvernig bankakreppan í upphafi fjórða áratugar leiddi til uppgangs fasisma í Evrópu.
Herdís segir að forsetakosningarnar hér á landi hafi endurspeglað þennan tíðaranda. „Turnarnir tveir voru annars vegar framboð stjórnarandstöðu sem höfðaði til þeirra óöruggu sem töldu sitjandi forseta mótvægi við ríkisstjórnina og hinsvegar framboð fyrirhruns-aflanna í Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki sem vilja sporna gegn því að forseta embættið verði valdameira, en þar á hún að sjálfsögðu við Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur.
Herdís segir, líkt og í kosningabaráttunni fyrir forsetaembættið, að hún telji spillingu ríkjandi á Íslandi og segir að ástandið á Íslandi sé ekki aðeins „tragískt, það er líka farsakennt– hér og þar.“
Herdís greinir það hvernig fræðimenn í Evrópu hafi margir hverjir misst trú á lýðræðinu og segi að það geti ekki komið í veg fyrir eða bætt þær þrengingar sem mörg ríkin standi frammi fyrir.
En Herdís er þessu ekki sammála og segir „En það gengur ekki upp að kasta hugmyndinni um lýðræði og mannréttindi fyrir róða og afhenda fámennum valdakjarna örlög þjóða,“ skrifar hún og bætir við: „En bíddu við! Hvar eru völdin í dag? Þau eru hjá fámennum fjármálaklíkum. Þar liggur hundurinn grafinn en ekki í þeirri staðreynda að flokksræði miðstéttarinnar er orðið hrákasmíð.
„Eina von Evrópu í dag er ekki blóðug bylting, ekki samþjöppun valds í sterkum leiðtoga heldur almenn vitundarvakning. Allt annað er afturför,“ segir Herdís.

Hemmi Gunn fallinn frá