Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
15:17 › 28. júlí 2012
Hælisleitandinn frá Alsír, sem laumaðist um borð í rannsóknarskipið Knorr í Reykjavíkurhöfn, er kominn í land í Bandaríkjunum og er mál hans nú í höndum bandarískra stjórnvalda. RÚV greinir frá þessu.
Skipið kom til Massachussets í gær, laumufarþeginn var hinsvegar sóttur í skipið á fimmtudag, í landhelgi Bandaríkjanna af fulltrúum frá bandarísku strandgæslunni, tolla- og innflytjendaeftirlitinu, Alríkislögreglunni og heimavarnaáðuneyti Bandaríkjanna.
RÚV greinir frá því að maðurinn hafi ekki verið til neinna vandræða um borð í Knorr eftir að upp um hann komst. Samskipti hans og áhafnarinnar hafa gengið vel og ónánaði hann engann, fyrir utan skipstjórann sem þurfti að sinna talsverði pappírsvinnu vegna laumufarþegans.

Hemmi Gunn fallinn frá