Dark Knight morðinginn skilur ekki gæsluvarðhaldið

Fangaverðirinir trúa honum ekki

James Holmes, maðurinn sem er hóf skothríð í kvikmyndahúsi í Aurora í Colorado fyrir rúmri viku skilur ekki hvers vegna hann er í fangelsi. Þessu greina bandarískir fjölmiðlar frá í dag. Tólf létust í skotárásinni og 58 særðust.

Að sögn The Daily News hefur Holmes engan skilning á því hvers vegna hann hefur setið í gæsluvarðhaldi og hefur oft orðið tíðrætt um það við fangaverðina.

En þeir sýna Holmes litla virðingu eða skilning og segjast telja að hann sé að reyna að gera sér upp minnisleysi til þess að geta undirbúið vörn sína fyrir rétti. Segja þeir að Holmes sé að reyna að láta fólk halda að hann sé andlega veikur og geti því ekki verið gerður ábyrgur gjörða sinna. Hann undirgengst nú geðmat.

Bandarískir fjölmiðlar hafa farið mikinn vegna undarlegrar hegðunar Holmes. Einkennilegt útlit hans, sérstaklega háraliturinn hefur orðið þeim mikill fréttamatur, en Holmes á einnig til að sýna sérkennileg svipbrigði.

Holmes er talinn hafa skipulagt glæp sinn lengi, en hann gekk inn í kvikmyndahúsið á föstudaginn í síðustu viku vopnaður þremur byssum auk táragas sprengju. Þá var hann með gasgrímu og segja vitni að hann hafi sagt: „ég er jókerinn“ áður en hann hafði skothríðina. Sýning á kvikmyndinni The Dark knight rises var að hefjast í kvikmyndahúsinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.