Skólinn fór ekki í útboð

Hjallastefnan innleidd í Tálknafjarðarskóla

Margrét Pála Ólafsdóttir, höfundur Hjallastefnunnar, var ráðin skólastjóri Tálknafjarðarskóla í vikunni. Hreppsnefnd Tálknafjarðar skrifaði undir viljayfirlýsingu við Hjallastefnuna ehf. um rekstur Tálknafjarðarskóla í maí en viljayfirlýsingin hefur enga formlega þýðingu. Rekstrarformi skólans verður ekki breytt án samþykkis menntamálaráðuneytisins en samkvæmt heimildum DV ríkir andstaða við slíkar hugmyndir innan þess. Ljóst er þó að Hjallastefnan verður innleidd í skólastarfið og verður það í fyrsta skipti sem stefnan er tekin upp á unglingastigi. „Það verða engar kollsteypur,“ segir Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna og framkvæmdastjóri Tálknafjarðarhrepps. Þá segir hún að gjaldskráin verði óbreytt fyrir næsta skólaár og ekki standi til að taka upp skólagjöld á grunnskólastigi.

Ekkert útboð

Rekstur skólans var ekki boðinn út áður en skrifað var undir viljayfirlýsinguna við Hjallastefnuna. „Við töldum að ekki væri þörf á því,“ segir Eyrún. Það var hins vegar gert áður en Hjallastefnan tók við rekstri barnaskólanna í Garðabæ og Hafnarfirði. Í umræðu um einkarekstur í skólakerfinu hér á landi hefur þeirri skoðun oft verið haldið á lofti að brýnt sé að rekstur grunnskóla sé boðinn út áður en þjónustusamningar eru gerðir við einkafyrirtæki. Þetta hefur meðal annars komið fram í umræðum á Alþingi og í greinargerð frá landsfundi Samfylkingarinnar árið 2004. Bæði í Vestmannaeyjum og á Akureyri hafa komið upp deilur í tengslum við útboð á rekstri leikskóla þegar gengið var til samninga við Hjallastefnuna ehf.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.