„Ég er orðin drullu leið á ógeðslegum strákum sem káfa, grípa og klípa.
Ég er orðin drullu leið á vinahópnum þeirra sem stendur hjá og hlær,“ segir Bylgja Gunnur Guðnýjardóttir í pistli á vefsíðunni Bleikt.is. Þar lýsir hún því hvernig hún er iðulega fjarlægð af skemmtistöðum þegar hún reynir að verja sig ágangi karlmanna.
„Einu sinni var mér hent spriklandi útaf balli á Mælifelli á Sauðarkróki eftir að ég réðist á strák þar inni. Hann fylgdist hlæjandi með því þegar dyravörðurinn brasaði við að koma mér út.
Aftur skarst dyravörður í leikinn fyrir utan danska barinn þar sem ég var búin að vopna mig með glerflösku gegn tveimur strákum.
Almennir borgara skárust einu sinni í leikinn á Prikinu þar ungur maður sat og yfir honum stóð ég, bandvitlaus og sló honum hvern löðrunginn á fætur öðrum,“ skrifar Bylgja og viðurkennir að hún hafi orð á sér fyrir að missa oft stjórn á skapi sínu.
„Ég hef orð á mér fyrir mikinn skapofsa og á það til að missa stjórn á mér og mínu.“ segir hún og útskýrir í kjölfarið það sem margir myndu kalla ofsafengin viðbrögð á Mælifelli, Danska barnum og Prikinu:
„Á Mælifelli á Sauðárkróki gekk ég fram á dreng, sem ég hafði aldrei hitt áður þegar hann gerði sér lítið fyrir og greip í klofið á mér.Á danska barnum reyndi annar strákanna að halda mér til að geta káfað á mér.
Á Prikinu hafði ég verið að labba upp stigann með bjór í sitthvorri hönd þegar ungi maðurinn greip í rassinn á mér,“ segir hún og bendir á nýlegra dæmi þar sem hún var að skemmta sér í miðborg Reykjavíkur í gær og piltur reyndi að komast inn undir föt hennar.
Svona haga þeir sér á djamminu
„Svona haga íslenskir strákar sér margir á djamminu,“ segir Bylgja og segir þetta ekki vera eðlilega hegðun.
Hún segist enn þreyttari á vinum þeirra sem haga sér svona og segja að viðkomandi geti ekki að þessu gert þar sem hann sé svo drukkinn.
„Og ég er orðin drullu leið á því að þetta sé bara eðlileg samþykkt hegðun. Ég á ekki eina vinkonu sem kannast ekki við að hafa lent í einhverskonar kynferðislegri líkamlegri áreitni eða viðbjóði þegar hún er úti að reyna að skemmta sér.
Ég lít á þessa gæja alla sem einn, sem stráka sem gætu nauðgað,“ segir hún en pistil Bylgju má lesa í heild sinni hér.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013