Aldrei eins margir veikir vegna skógarmítils

Aldrei hafa eins margir veikst vegna bits frá skógarmítli á þessum árstíma í Svíþjóð

Sextíu og átta manns hafa nú veikst vegna bits frá skógarmítli í Svíþjóð. Aldrei hafa eins mörg tilfelli orðið í Svíþjóð á þessum árstíma, en á sama tíma seinustu fjögur ár voru á milli þrjátíu og eitt og fimmtíu og átta tilfelli tilkynnt. Frá þessu greinir Aftonbladet.

Mítillinn þrífst þegar ekki er of heitt í veðri og vætusamt er. Skógarmítill er orðinn landlægur hér og finnst um allt Ísland, en ekki í sama mæli og til dæmis í Skandinavíu.

Það sem er sérstaklega hættulegt við bit frá mítlinum er bakterían sem um fimm prósent kvikindanna bera með sér, borrelia burgdorferi, en hún veldur Lyme-sjúkdóminum.

Bakterían getur haft mjög skaðleg áhrif á taugakerfi og eru dæmi um að menn hafi hlotið varanlega örorku vegna bits frá mítlinum. Bitið er oft auðþekkt á rauðum hringlaga þrota í húðinni þar sem svo annar hringur myndast utan um og er stundum kallaður flökkuroði.

Full ástæða til að vara sig

„Það er full ástæða til að vara við þeim, bæði er þeim að fjölga hérlendis og svo fyrir fólk sem er að ferðast um Skandinavíu er mikilvægt að vera meðvitað um þá,“ sagði Vilhjálmur Ari Arason læknir við DV um mítilinn

Kjöraðstæður skógarmítla eru helst í kjarri og háu grasi. Vilhjálmur Ari sagði það mikilvægt fyrir fólk sem ferðast um slík svæði þar sem skógarmítill er landlægur að vera vart um sig og leita að pöddunni á líkama sínum í enda dags.

Er lengi að bora sig inn að blóði

„Skógarmítillinn byrjar á að hengja sig á húðina og það tekur hann tíma að bora sig inn að blóði. Það getur tekið 1–2 sólarhringa áður en hann ræðst til atlögu og því mikilvægt fyrir fólk að vera vart um sig. Ef það hefur verið á svæðum þar sem hann getur fundist þá að leita á húðinni í enda dags og svo er mikilvægt að leita líka á börnum. Við erum að sjá aukinn fjölda tilfella hér á landi og því má gera ráð fyrir því að þeim muni fjölga á komandi árum.“

Skógarmítill er sýnilegur og því oft hægt að losa sig við hann áður en hann hefur borað sig inn í húðina. „Það hafa því allir tækifæri til þess að leita að honum og jafnvel slá hann af áður en hann er kominn inn,“ sagði Vilhjálmur Ari við DV.

Sjá einnig:

DV.is - Öryrki eftir að padda beit hann

DV.is - Feiti virkar gegn skógarmítlinum


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.