Kristinn Hrafnsson segist ekki hafa fengið morðhótun, en hann segir að fjölmiðlar í Bandaríkjunum láti að því liggja oft á tíðum að afgreiða eigi WikiLeaks líkt og al Qaeda hryðjuverkasamtökin, en í Bandaríkjunum vilja menn helst útrýma al Qaeda og má því draga þá ályktun af orðum Kristins að hið sama eigi við um WikiLeaks.
„Nei, ég hef ekki fengið morðhótanir, ekki nema þessar óbeinu sem berast frá mönnum í fjölmiðlum í BNA. Þar hafi margir viljað afgreiða WL eins og Al Kaida,“ segir hann.
Kristinn er á beinni línu núna og svarar spurningum lesenda DV.
Kristinn segir að WikiLeaks hafi ekki brotist inn í tölvur manna eða fyrirtækja. „WL hefur ekki brotist inn í tölvur manna og fyrirtækja. Fullyrt hefur verið að WL hafi birt gögn sem séu fengin með þeim hætti. Það er í raun ekki óeðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar birti slík gögn. Íslenskir dómstólar og fjölmargir erlendir hafa úrskurðað um slíkan rétt ef upplýsingarnar varða almannahagsmuni,“ segir hann.
Kristinn svaraði einnig spurningum blaðamanns DV en horfa má á það í myndbandinu hér fyrir ofan.
Kristinn situr fyrir svörum en hann hefur verið einn af leiðtogum uppljóstrunarsíðunnar WikiLeaks um langt skeið og hefur komið að stærstu lekum síðunnar. Hann starfaði áður sem blaða- og fréttamaður á Íslandi.
Uppljóstrunarsíðan hefur birt margskonar upplýsingar, meðal annars lánabók Kaupþings banka, myndband af bandarískum hermönnum drepa saklaust fólk í Írak og mörg hundruð þúsund sendiráðsskjöl úr sendiráðum Bandaríkjanna. Síðan hefur þurft að sæta árásum stjórnvalda víða um heim og hefur verið reynt að koma í veg fyrir að fólk geti styrkt samtökin.

Hemmi Gunn fallinn frá