Lögregla hafði afskipti af ökumanni í miðbænum um kvöldmatarleytið vegna gruns um ölvunar- og/eða vímuefnaakstur. Aðilinn reyndist vera undir áhrifum vímuefna. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum fyrir sömu iðju. Þá reyndist bifreiðinni hafa verið stolið úr Austurbænum um helgina. Aðilinn var látinn laus eftir töku blóðsýnis og skýrslutöku.
Milli miðnættis og klukkan fjögur í nótt hafði lögreglan afskipti af sex ökumönnum á höfuðborgarsvæðinu sem ýmist höfðu verið sviptir ökuréttindum eða voru ekki með ökuréttindi. Fimm ökumannanna voru undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna og einn var með hníf á sér. Allir voru látnir lausir eftir skýrslutökur.
Upp úr miðnætti rann lögreglan á kannabislykt og hafði hún afskipti af aðila sem var að reykja. Sá var með kannabis í vasanum sem og hníf. Lögreglan tók þetta af honum en hann mun fá sekt vegna vörslu fíkniefna og fyrir vopnaburð.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu voru tveir aðilar „teknir úr umferð“ vegna ölvunar, óspekta og fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Í bæði skipti hafði lögregla rætt við þá áður og gefið þeim viðvörun. Mennirnir gistu fangaklefa og mega þeir búast við kæru vegna brota á lögreglusamþykkt.
Um fimmleytið varð lögregla vitni að líkamsárás í miðbænum. Karlmaður réðst á konu og veitti henni áverka sem voru þó ekki alvarlegir. Maðurinn var handtekinn og gistir hann fangageymslu þar til hægt verður að yfirheyra hann.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013