Norðmenn minnast þess í dag að ár er liðið frá fjöldamorðunum í Osló og í Útey, þar sem 77 manns voru myrtir, þar af fjölmörg ungmenni, og 242 særðir.
Guðsþjónustur hófust klukkan níu að íslenskum tíma en þær eru haldnar í kirkjum allt norður til Svalbarða. Í dómkirkjunni í Osló verða Haraldur fimmti Noregskonungur og Sonja drottning meðal viðstaddra.
Útey var opnuð fyrir þeim sem lifðu árásirnar af snemma í morgun en síðar í dag halda ungliðasamtök Verkamannaflokksins minningarathöfn á eyjunni. Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs mun leggja blómsveig á eynni og ávarpa viðstadda. Eskil Pedersen, formaður ungliðahreyfingarinnar, og Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, flytja einnig ávarp.
Þá verður fórnarlambanna minnst með einnar mínútu þögn áður en flautað verður til leiks á knattspyrnuleikjum í Noregi.
Í kvöld verður kertum og rósum fleytt í Útey og dagskránni lýkur með minningartónleikum á Ráðhústorginu í Osló. Rokksveitin deLillos, rappdúettinn Karpe Diem og norska Útvarpshljómsveitin munu koma fram.
Hægt er að horfa á beina útsendingu norska ríkisútvarpsins frá minningardagskránni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013