Ferðamaður fauk í óveðri

Tjöld fuku og brotnuðu

Ferðamaður fauk við Álftavatn að Fjallabaki í gærkvöldi í ofsaveðri. Þar voru um 30 metrar á sekúndu en ferðamaðurinn slasaðist illa á mjöðm. Björgunarmenn óku manninum til móts við sjúkrabíl og var hann svo fluttur á sjúkrahús í kjölfarið.

Þá fuku og brotnuðu tjöld í Landmannalaugum en samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu voru þar rúmlega 20 ungmenni á aldrinum 15 – 17 ára. Björgunarmenn létu þau fá þurran fatnað og íslenska kjötsúpu og var þeim komið fyrir í nýjum tjöldum.

Ekki var hægt að nota þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna veðurs í gær. Um 40 björgunarsveitarmenn eru nú staddir uppi á hálendi en þar er fjöldi erlendra ferðamanna.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.