Eldsneytislausa skútu rak

Björgunarbátur aðstoðaði áhöfn til lands

Um miðnætti í gærkvöldi barst hjálparbeiðni frá erlendri skútu sem hafði orðið eldsneytislaus á siglingu á sundunum utan við Reykjavík. Hana rak hratt að landi.

Þórður, einn af björgunarbátum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Reykjavík var kallaður út og náði hann fljótt til skútunnar og aðstoðaði áhöfn hennar til lands.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.