Stormviðvörun á Suðurlandi

Einnig varað við stormi í Faxaflóa og á Miðhálendinu

Hvassviðrið er farið að færast í aukana allverulega á Suðurlandi og mun veðrið halda áfram að versna eftir því sem líður á kvöldið. Veðurstofan hefur varað við stormi á Suðurlandi, í Faxaflóa og á Miðhálendinu í kvöld. Búast má við hvössum vindi og snörpum vindhviðum sunnan og vestantil í kvöld með mikilli rigningu.

Slysavarnarfélagið Landsbjörg hvetur fólk til að halda kyrru fyrir. Veðurstofan gerir ráð fyrir því að hvassviðrið á Suðurlandi muni ná hámarki á mili klukkan 20 og 22 í kvöld. Einnig mun halda áfram að hvessa í Reykjavík á næstu klukkutímum með mikilli úrkomu.

Mikilvægt er að binda niður trampólín, grill og garðhúsgögn auk þess sem fólk á ferð í bílum með eftirvagna er hvatt til að halda kyrru fyrir á meðan það versta gengur yfir.

Samkvæmt Veðurstofu getur vindhraðinn farið í 23 metra á sekúndu við suðurströndina í kvöld og einnig inni á hálendinu á vestanverðu landinu. Það gæti orðið mjög hvasst upp af Borgarfjarðardölum og undir fjöllum á sunnan- og vestanverðu landinu. Hvasst er í Vestmannaeyjum en ekkert til að hafa áhyggjur af, samkvæmt lögreglu. Rigning og rok er í Landamannalaugum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.