Ungur maður á Akureyri segir að leigubílstjóri hafi ráðist á sig í Snægili um sexleytið í morgun. Að sögn mannsins var hann á leið heim til sín ásamt félaga sínum eftir skrall. Þegar á áfangastað var komið hafi ekki verið heimild á kortinu hjá félaga hans, svo að hann hafi farið inn til sín og sótt kortið sitt. „Ég kom til baka með kortið og ætlaði að borga manninum og spurði hvort það væri í laga að rukka þegar mælirinn væri bilaður en þetta var stafrænn mælir sem vantaði nokkur strik á og virtist því vera bilaður.“ sagði maðurinn í samtali við DV.
„Hann rukkaði mig eitthvað um 2500 krónur en þegar ég spyr hann hvort það sé í lagi að rukka þegar mælirinn er bilaður þá ræðst hann á mig.“ sagði hann. „Hann opnaði hurðina, sló mig og sparkaði í mig. Ég reyndi að hlaupa undan honum og hann hætti að slá mig þegar við vorum komnir hringinn í kringum bílinn.“
Maðurinn segist hafa talað við lögreglu og að það yrði ekkert úr málinu vegna þess að það væri ekkert áverkavottorð. „Það sést í rauninni ekki á mér. Lögreglan skildi það samt alveg að ég hafi verið sleginn, leigubílstjórinn kom upp á stöð í morgun og baðst afsökunar.“
Í samtali við DV sagði vaktstjóri lögreglunnar á Akureyri að hann gæti hvorki staðfest af eða á með eitt eða neitt í slíku máli. Hann vildi ekki heldur staðfesta hvort umræddur leigubílstjóri hafi komið niður á lögreglustöð til að biðjast afsökunar. „Þetta er ekki mál sem við getum tjáð okkur um við fjölmiðla, það er bara réttur manna að lögregla sé ekki að því.“ Engar upplýsingar fengust heldur um málið frá Bifreiðastöð Oddeyrar.
Maðurinn segist vera ósáttur við málalyktir: „Mér finnst í rauninni leiðinlegt að réttlætinu sé ekki fullnægt, þetta er eins og ef kassadama í Bónus myndi lemja viðskiptavini þar sem þeir væru að setja eitthvað út á þjónustuna.“
„Ég fann það að lögreglan var meira leigubílstjóra-megin. Hún talaði mikið um það að fólk gæti alveg sleppt reiði sinni og veitt fyrirgefningu. Þeir sögðu mér bara að kæran kæmi til með að fara númer 60 í bunkann og að það væri engin bótakrafa eða neitt. Þeir sögðu hins vegar að ég gæti alveg kært það en að ég fengi ekkert út úr því. Þeir ýjuðu mikið að þessu og sögðu í rauninni allt nema það að ég myndi ekki kæra þetta af því að það hefði ekkert upp á sig.“

Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum