Interpol varar við fölsuðum miðum á Ólympíuleikana

Tíu vefsíður selja falsaða miða

Interpol í Lundúnum hefur gefið út tilkynningu þar sem fólk er varað við að versla miða á Ólympíuleikana 2012 og Ólympíuleika fatlaðra 2012 af félaginu Euroteam. Í tilkynningunni segir að félagið haldi úti tíu vefsíður sem selja falsaða miða á atburðina.

Neðangreindar vefsíður eru haldnar úti af Euroteam-félaginu og forðast skal viðskipti á þeim:

www.euroteam.net

www.tixnet.com

www.olympicticket.info

www.euroteam.info

www.euroteamtickets.com

www.2012tickets.org

www.londonsummergames.net

www.londonsummergames.org

www.euroteam.travel

www.worldticketservice.net

Ólíklegt er að þeir sem hafa nú þegar keypt miða í gegnum þessar vefsíður fái miðana afhenta þar sem félagið hefur ekki getað sannreynt uppruna þeirra. Þeim sem hyggjast kaupa miða á Ólympíuleikana er bent á að versla við síðuna sem Interpol gefur upp, www.tickets.london2012.com eða þá að hafa samband við Íþrótta- og Ólympíusambandið.

Talið er að þau lönd sem svikamyllan nái til eru Bandaríkin, Bretland, Austurríki, Ástralía, Belgía, Búlgaría, Kanada, Kína, Kýpur, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Ísland, Írland, Ítalía, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.