Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
13:41 › 21. júlí 2012
Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo telur Íslendinga vera sjúka og veikgeðja. Þetta kom fram í máli hans þegar hann hélt ræðu fyrir nemendur í CEIBS viðskiptaháskólanum í Shanghai um áramótin.
„Íslendingar eru sjúkir og veikgeðja,“ hafði bandaríska dagblaðið Washington Times eftir Nubo í janúar. „Þeir eru hræddir í návist frambærilegs ungs manns,“ bætti hann við.
Í ræðu sinni lýsti hann yfir óánægju sinni með ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að hafna umsókn hans um leyfi til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum en hann hyggst nú gert leigusamning um svæðið. Ræðuna flutti hann við hátíðlega athöfn í háskólanum eftir að hafa nýverið styrkt skólann um jafnvirði tæplega 200 milljóna króna.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi