Með ólíkindum þykir að skipverjar á smábáti hafi sloppið lifandi þegar flóðbylgja skall á bátnum úti fyrir ströndum Grænlands. Risastór ísjaki brotnaði úr jöklinum og hrundi í sjóinn, sem varð til þess að aldan myndaðist.
Eigandi bátsins hafði farið með ástralskan ferðamann í siglingu nærri Ilulissat á vesturströnd Grænlands, til að skoða jökulinn. Frændi skipstjórans sá um að túlka fyrir ferðamanninn en hann náði að taka myndband af atburðinum. Ekki liggur fyrir hvenær þetta gerðist en myndbandið var sett inn á YouTube í gær.
„Ég er frá öðrum bæ þar sem jöklar finnast ekki í nágrenninu, svo að ég var alveg jafn mikill ferðamaður og sá ástralski. Náttúrufegurðin var ótrúleg, en náttúrunni er sama um alla.“ sagði upptökumaðurinn. „Þessi dagur var næstum því okkar seinasti.“
Um leið og skipstjórinn náði áttum setti hann á fulla ferð. Líklega hefur hann bjargað lífi allra um borð með snarræðinu.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum