Elín Ingimundardóttir
elin@dv.is
11:36 › 21. júlí 2012
„Við erum bara að vinna fyrir viðskiptavini okkar og höldum trúnaði við þá,“ segir Þorkell Guðjónsson, stjórnarmaður Rhea ehf. Eins og fram kom í miðvikudagsblaði DV varð nafn- og stjórnarbreyting í einkahlutafélaginu Veiðilæk ehf. sem Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, stofnaði.
Tilgangur félagsins var að halda utan um rekstur og eignarhald á 843 fermetra sumarhúsi Sigurðar í Borgarfirði. Kallast einkahlutafélagið nú Rhea ehf. Eigendurnir vilja ekki gefa upp hverjir þeir eru en Þorkell segir Sigurð Einarsson ekki eiga hlut í Rhea ehf. Þar með er sumarhúsið í Borgarfirði ekki lengur í hans eign.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013