Dawood Rajiha, varnarmálaráðherra Sýrlands, og Assef Shawkat, mágur forseta landsins, féllu á miðvikudaginn í sprengingu í byggingu ríkisstjórnarinnar. Borgarastyrjöld ríkir nú í Sýrlandi og eru þetta hæst settu meðlimir ríkisstjórnarinnar sem fallið hafa frá því að átök hófust. Sýrlenska ríkissjónvarpið greindi frá því að sprengingin hafi orðið á fundi ráðherra og yfirmanna hersins.
Um sextán mánuðir eru síðan átök hófust í Sýrlandi og hatrammir bardagar hafa undanfarna daga átt sér stað fyrir utan Damaskus þar sem forsetinn, Bashar al-Assad, er með höfuðstöðvar sínar. Fleiri létust í árásinni en það voru fyrst og fremst starfsmenn í byggingunni og aðstoðarmenn.
Óhugnanleg fjöldamorð
„Þessi var tekinn af lífi. Hann var óbreyttur borgari,“ segir ónefndur aðgerðarsinni þegar hann bendir á lík í myndbandi CNN. Myndbandið var tekið af andófsmönnum í Sýrlandi og þar má sjá fjölda líka liggjandi við byggingu í landinu. „Þetta var frændi hans, hann reyndi að bjarga honum,“ segir hann og bendir á þann sem liggur látinn við hlið hins. Hinir látnu voru 45 alls.
Myndbandið er eitt sárafárra heimilda sem erlendir fjölmiðlamenn hafa aðgang að, enda hefur sýrlenska ríkisstjórnin bannað öllum erlendum miðlum að starfa í landinu. Mennirnir í myndbandinu tala um fjöldamorð sem framin hafi verið af hálfu hermanna ríkisstjórnarinnar. Á meðal hinna látnu í myndbandinu má sjá litla stúlku, sem er með skotsár á enninu.
Tekin af lífi hvert á fætur öðru
Í myndbandinu er því lýst hvernig hermenn ríkisstjórnarinnar hafi farið hús úr húsi í leit að vopnum. Þeir hafi skipt fólkinu í herbergi – konur í eitt, karlar í annað – og spurt ítrekað hvar vopn væru að finna. Þegar þeir fengu þau svör að fólkið vissi ekki um nein vopn, hafi þeir byrjað að taka þau af lífi, eitt og eitt. Að endingu höfðu öryggissveitir ríkisstjórnarinnar tekið 45 af lífi.
Þetta umrædda fjöldamorð er ekki það eina sem hefur átt sér stað í landinu en í síðustu viku voru til að mynda um 200 tekin af lífi í þorpi í landinu. Það er ljóst að hér er um borgarastyrjöld að ræða þar sem að líf óbreyttra borgara er einskis metið.
Rússar og Kínverjar stöðva tillögur
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur haft málið til umfjöllunar en Rússar og Kínverjar standa nú í vegi fyrir því að ályktun um refsiaðgerðir gegn Sýrlandi verði samþykktar. Rússar vilja ekki ganga lengra en að hvetja báða aðila í deilunni til þess að hætta öllu ofbeldi. Kínverjar og Rússar hafa fellt tvær ályktanir með neitunarvaldi sínu. Íslenska ríkisstjórnin hefur lýst yfir stuðningi sínum við tillögurnar og vill að hafnar verði refsiaðgerðir gegn sýrlensku ríkisstjórninni. Borgarastyrjöldin á sér rætur í mótmælum þar í landi, en þá var krafist stjórnarfarslegra endurbóta. Ríkisstjórnin brást við af hörku. Núverandi forseti landsins, al-Assad hefur verið við völd frá árinu 2000. Hann tók við af föður sínum sem hafði verið við völd frá árinu 1971.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013