Öðrum sjúkdóminum til að verða útrýmt

Gíneu-orminum verður líklega brátt útrýmt

Allt bendir til þess að gíneu-orminum verði brátt útrýmt. Tíðni smitana hefur minnkað um 99% síðan árið 1986. Það ár voru 3.5 milljón tilvik af sjúkdóminum en á fyrstu mánuðum 2012 hafa aðeins verið um fimm tilvik. Þetta kemur fram hjá Scientific American.

Þetta þýðir að gíneu-ormurinn verður annar sjúkdómurinn í mönnum sem tekist hefur að útrýma, en bólusótt var útrýmt árið 1979.

Þetta er að hluta til Jimmy Carter‘s Carter Center mannúðarsamtökunum að þakka. Samtökin, sem stofnuð voru af Jimmy Carter fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hafa náð að minnka tíðni sjúkdómsins með því að nota vatnssíun og lirfueyði en einnig í gegnum aukna menntun um sjúkdóminn.

Gíneu-ormurinn er sníkjudýr sem smitast í gegnum drykkjarvatn. Eftir að manneskja hefur innbyrt lirfur ormsins vex hringormurinn inni í líkamanum á einu ári. Síðan fer ormurinn út um fótinn en það er afar sársaukafullt. Sumir reyna að minnka sársaukann með því að hafa fótinn í vatni en það gerir aðeins illt verra. Ormurinn getur verið allt að metralangur.

Um 97% smitana eiga sér stað í Suður-Súdan en sem betur fer mun líklega enginn þurfa að líða slíkan hrylling aftur, eftir að orminum hefur verið eytt.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.