Íhugar klósettgjald: „Þetta er farið að pirra mig alveg ægilega“

Ekki sjálfgefið að ferðamenn noti klósettin frítt segir eigandi Baulu

Kristberg Jónsson, eigandi Baulu í Borgarfirði, er orðinn langþreyttur á rútum sem stoppa við sjoppuna í þeim eina tilgangi að nota salerni staðarins.

„Ég er bara farinn að ergja mig út af þessum árans hlandrútum,“ segir Kristberg, eða Kibbi eins og hann er jafnan kallaður, í samtali við blaðamann DV. „Það er náttúrulega óþolandi að það komi hérna 50–60 manns í rútu, fari bara á klósettið og svo beinustu leið út. Það þarf að fara að gera eitthvað í þessum málum,“ segir Kristberg en bætir við að það sé hægara sagt en gert.

Sérstakt klósettgjald gæti komið til greina. „Það er ekkert sjálfgefið að fólk fái að nota klósettin við þjóðvegi landsins frítt,“ segir Kristberg og nefnir í því samhengi salernisferðir á erlendri grundu. „Þegar við ferðumst erlendis förum við ekki á klósett í vegasjoppum landsins án þess að borga fyrir það.“

Þetta er aðeins brot af greininni sem birtist í DV. Áskrifendur geta lesið hana í heild inn á DV.is með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.