Ian Sample, blaðamaður Guardian, ræddi við hóp vísindamanna um stærstu uppgötvun í áratugi – uppgötvun fótsporsins sem Higgs eindin svokallaða skilur eftir sig.
Umræðan átti sér stað með notkun Google+ síðunnar, en þar geta nokkrir notendur hist saman í svokölluðu „Hangout“, sem leyfir hópi fólks að tala saman í gegnum vefmyndavélar. Hópurinn ræddi uppgötvunina og lýsti Higgs eindinni með leikmannshugtökum.
Ásamt vísindmönnunum voru þær Liz Mermin, sem er kvikmyndagerðarkona, og Alison Boyle, sem starfar hjá vísindasafninu í London, viðmælendur Ians.
Er líklegast „Guðseindin“
Eindin sem var uppgötvuð í CERN hegðar sér líkt og eindin sem eðlisfræðingurinn Peter Higgs spáði fyrir um að spilaði grundvallandi rullu í heiminum og hefur verið kölluð „Guðseindin“. Gögnin sýndu fram á að eind sem að er um 125,3 gígarafeindavolt á þyngd var til staðar í mælingunum. Hún er um 133 sinnum þyngri en róteindin, líkt og Higgs eindin er samkvæmt útreikningum.
Margir vísindamenn eru því nokkuð vissir um að þarna sé Higgs eindin á ferð og sagði Stephen Hawking meðal annars að Higgs ætti heiður skilinn: „Þetta eru virkilega mikilvægar niðurstöður og fyrir þetta ætti í raun að veita Higgs nóbelsverðlaunin.“
Svarar grundvallandi spurningum
Higgs eindin er kölluð „Guðseindin“ vegna dulúðarinnar sem henni fylgir og þess grundvallandi hlutverks sem að hún spilar í eðlisfræðinni. Hún á til dæmis að útskýra hvernig efni hlýtur massa og án hennar er sú spurning algjörlega óútskýrð.
En það vefst enn fyrir mönnum að finna eindina, enda hefur einungis fótspor hennar verið fundið. Frekari rannsókna er þarft og vísindamenn eru tvíefldir eftir þessa mikilvægu uppgötvun. Hér má sjá samræðuna á milli blaðamanns Guardian og vísindamannanna.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013