Ingibjörg tekur völdin í Krossinum

Dóttir Gunnars snýst gegn föður sínum

Á yfirborðinu fer safnaðarstarf Krossins vel fram. Samkomur eru haldnar þrisvar í viku þar sem meðlimum er blásinn í brjóst boðskapur fagnaðarerindisins.

En undir niðri kraumar djúpstæð ólga.

Í helgarblaði DV er að finna ítarlega úttekt á stöðu mála í Krossinum og rætt við fjölmarga heimildarmenn sem greina stöðuna innan safnaðarins, en ólgan birtist ekki á samkomum safnaðarins heldur á fámennum fundum innstu koppa í búri Krossins; valdabarátta heillar fjölskyldu.

Þetta er mat heimildarmanna DV í innsta hring Krossins. Fyrir fáeinum vikum sauð upp úr þegar Gunnar Þorsteinsson, sem áður var kenndur við Krossinn, mætti á safnaðarfund og bauð sig fram til stjórnarsetu. Gunnar, sem stofnaði söfnuðinn árið 1979, lét af starfi forstöðumanns Krossins eftir að fjöldi kvenna bar hann þungum sökum. Gunnar var sakaður um að hafa margsinnis brotið gegn kynfrelsi kvennanna og sá sér ekki stætt að leiða söfnuðinn í skugga þeirra ásakana. Nú, þegar öldur þess máls hefur lægt, vill Gunnar seilast til valda á ný. Að sögn heimildarmanna, sem sóttu téðan fund, voru þung orð látin falla áður en kosið var til stjórnar.

Athygli vakti að sá sem mælti hvað mest gegn Gunnari á fundinum var núverandi forstöðumaður Krossins og dóttir Gunnars, Sigurbjörg Gunnarsdóttir. Á fundinum steig Sigurbjörg í pontu og hélt ræðu þar sem hún hvatti fundarmenn til að kjósa föður sinn ekki.

Tvær valdablokkir börðust um völd innan safnaðarins áður en kosið var til stjórnar; Gunnar Þorsteinsson og Ingibjörg Guðnadóttir, fyrrverandi eiginkona Gunnars.

Ítarlega er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.