„Við erum bara gjörsamlega dofin hérna og vitum ekki hvað við getum gert,“ segir Hjördís Svan Aðalheiðardóttir sem staðið hefur í harðri forræðisdeilu við danskan barnsföður sinn. Þau eiga saman þrjár dætur en þegar þau skildu fyrir þremur árum síðan ákvað Hjördís að fara heim til Íslands með dæturnar. Þá hafði ekki verið dæmt í forsjármáli þeirra úti í Danmörku. Hún hefur sakað barnsföður sinn um hafa beitt sig og börn sín andlegu og líkamlegu ofbeldi. Á föstudag voru dæturnar færðar með lögregluvaldi frá móðurinni. Það var gert til þess að framfylgja dómsúrskurði.
Danskur dómur dæmdi foreldrunum sameiginlegt forræði og bæði Héraðsdómur Austurlands og Hæstiréttur hafa staðfest þann dóm. Hjördís er hins vegar ósátt við þann dóm og vill að málið sé tekið upp aftur á grundvelli nýrra gagna sem hún segir liggja fyrir í málinu.
Á föstudaginn voru stúlkurnar teknar af móður sinni af lögreglumönnum á heimili hennar. Fjölmennt lið lögreglu mætti til þess að ná í stelpurnar og segja sjónarvottar að bílarnir hafi verið sjö talsins. Faðirinn mætti ekki á staðinn en yfirvöld tóku börnin fyrir hans hönd. Barnaverndarnefnd kom þeim svo fyrir hjá vandalausum en faðirinn er talinn hafa komið til landsins á laugardag. Hjördís segist svo hafa fengið að vita það í gærkvöldi að dæturnar væru á leið til Danmerkur, þær hefðu verið færðar í fylgd lögreglunnar um borð í flugvél.
Forræði þeirra er sameiginlegt en vegna þess að málið var tekið fyrir í Danmörku þá er það úrskurðað dvalarland þeirra og samkvæmt Haag samningum er öðru foreldrinu óheimilt að fara með þær úr landi. „Dönsk yfirvöld dæma alltaf þeim í vil sem ætlar ekki að fara með barnið úr landi. Ég sagði allan tímann að við vildum búa á Íslandi því að hér viljum við búa og höfum alltaf búið. Mér er sagt að það hafi orðið mér að falli.“


Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013