„Ég var í stóra pottinum að hafa það notalegt og tala við kunningjakonu mína, þegar allt í einu kemur hreyfing á fólkið sem sat í grynnri enda pottsins og við heyrum kallað – það er kúkur í lauginni,“ segir Sólveig Antonsdóttir, sundlaugagestur í Árbæjarlauginni um atvik sem átti sér stað í heita potti laugarinnar í síðustu viku, þegar stór kúkur sást fljótandi um í pottinum. Sólveig gagnrýnir vinnubrögð starfsmanna laugarinnar sem hún segir að hafi ekki tæmt og hreinsað pottinn eftir að hafa veitt kúkinn upp með háf.
„Ég hélt í fyrstu að þetta væri brandari,“ segir Sólveig en áttaði sig á alvöru málsins þegar fólk fór að hlaupa í ofboði upp úr pottinum. „Við sátum þarna bara steinrunnar í pottinum þegar starfsmaður kom að með háf. Hann fór ofan í pottinn, náði kúknum í háfinn og stóð síðan og hélt á þessu.“
Hún segir alla hafa verið komna úr pottinum á þessum tímapunkti en hún hafi fært sig ásamt kunningjakonu sinni yfir í annan pott þar sem þær fylgdust með því sem fram fór. „Pottinum var ekki lokað. Ég var þarna í smá stund því ég ætlaði að athuga hvort pottinum yrði virkilega ekki lokað. Það skeði bara ekki neitt. Það kom bara nýtt fólk sem vissi ekki neitt og lagðist í pottinn. Ég fór síðan í sturtuna þar sem voru náttúrulega gífurlegar umræður um kúkinn í pottinum.“ Aðspurð segist hún ekki hafa talað við starfsfólk laugarinnar um málið. „Ég labbaði bara út og ákvað að koma aldrei þangað aftur.“
Sólveig hringdi í kjölfarið í Heilbrigðiseftirlitið sem að hún segir að hafi ekki tekið ábendingu hennar mjög alvarlega. „Þeim fannst þetta, held ég bara frekar ómerkilegt, að ég skyldi vera að kvarta yfir þessu.“ Málið yrði þó tekið til athugunar.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013