„Fréttamaðurinn og fræðimaðurinn flissuðu og skríktu“

Mogginn hjólar í RÚV vegna kosningasjónvarps

„Svona hefðu þessir kumpánar mátt klóra sér á kaffistofunni í auglýsingahléi,“ skrifar leiðarahöfundur Morgunblaðsins um umfjöllun Sjónvarpsins um forsetakosningarnar síðastliðið laugardagskvöld. Þar hnippir leiðarahöfundur í í fréttamann Sjónvarpsins, Boga Ágústsson, og stjórnamálaskýranda og segir þá hafa slegið sér á læri þegar fjallað var um niðurstöður Gallup-könnunar sem sýndi að sextíu prósent þeirra sem ætluðu að kjósa sitjandi forseta Ólaf Ragnar Grímsson væru stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins.

„Fréttamaðurinn og fræðimaðurinn flissuðu og skríktu og sögðu að þetta undur mikil sem lengi yrði í minnum haft og kennsluefni framtíðarinnar í stjórnmálafræðinni,“ segir í leiðara Morgunblaðsins en ritstjórar þess eru Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen.

Segir í leiðaranum að fréttastofa Sjónvarpsins hefði verið ósátt við niðurstöðu forsetakosninganna. „Það kom á óvart því ekki hafði verið kynnt formlega um framboð stofnunarinnar,“ segir í leiðaranum.

Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi ráðherra, fjallar um leiðara Morgunblaðsins á bloggi sínu en þar segir hann Morgunblaðið ekki geta leynt ánægju sinni vegna úrslita kosninganna. „Leiðarinn fjallar einkum um það hve illa fréttastofa Ríkissjónvarpsins hafi staðið sig. Með velþóknun er vitnað til fremur niðrandi ummæla um Boga Ágústsson , reyndasta fréttamann sjónvarpsins. Þetta er afar sérstakt,“ segir Eiður en í leiðara Morgunblaðsins er vitnað í orð Páls Vilhjálmssonar blaðamanns sem sagði kosningasjónvarp Ríkisútvarpsins hafa verið hörmung frá a til ö.

„Stuðningsmenn Þóru vissu fyrirfram að slagurinn var tapaður og það skein fýlan af öllu settinu. Þóruistinn sem valdi Þorstein Pálsson og Þórhildi Þorleifsdóttur til að ræða kosningaúrslitin fær sérstaka útnefningu fyrir smekkleysi og hlutdrægni,“ skrifar Páll sem segir að endingu: „Eftir forsetakosningarnar 2012 er RÚV fagleg ruslahrúga.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.