Mark Goodwin brotnaði saman í vitnastúkunni í réttarsal í Essex á Englandi, þegar hann greindi kviðdómendum frá þeirri hræðilegu lífsreynslu að sjá eiginkonu sína myrta á heimili þeirra.
Jeanette Goodwin var myrt árið 2010 af fyrrverandi ástmanni sínum. Hann stakk hana ítrekað í kvið og brjóst og reyndi svo að ráðst á eiginmann hennar.
Jeanette hafði nýverið slitið sambandi sínu við Martin Bunch, manninn sem hún hafði átt í átta ára ástarsambandi við án vitneskju eiginmanns hennar.
Bunch hefur verið ákærður fyrir að stinga Jeanette nítján sinnum í kvið og brjóst og skilja hana eftir í blóði sínu á heimili hennar.
Hélt hann hefði kýlt hana
Mark Goodwin varð vitni að árásinni lýsti því fyrir réttinum hvernig hann sá Bunch gekk upp að Goodwin og virtist kýla hana í magann. Í raun var Bunch með stærðarinnar eldhúshníf sem hann rak á í kvið hennar. „Hann gekk beint upp að Jeanette og mér sýndist hann kýla hana í magann, sem mér fannst mjög einkennilegt,“ sagði Goodwin.
„Jeanette hentist aftur á bak og hélt um magann á sér og það var blóð allstaðar. Hún sagði: „Hann stakk mig,“ og segir Goodwin að hún hafi því sem næst reynt að koma sér út úr húsinu, en Bunch hafði króað hana af við í stofunni.
Goodwin segir að Martin Bunch hafi litið á sig og sagt yfirvegað: „Ég sagði þér að ég myndi drepa hana“. Næst lýsti Goodwin því hvernig þeir Bunch tókust og Goodwin segist hafa náð að flýja út úr húsinu. Taldi hann að eiginkona sín hefði gert hið sama enda vissi hann ekki að hún væri svo illa særð sem hún var. Honum brá þegar hann áttaði sig á því að hún var læst inni í húsinu með Bunch.
Goodwin hljóp aftur fyrir húsið þeirra og sá þar hvernig Bunch hafði brotið sér leið inn í bakgarðinn þeirra í gegnum girðingu og haft þannig aðgengi að húsinu. Hann segist hafa séð Jeanette í garðinum og hringdi á neyðaraðstoð. „Það var blóð allstaðar. Blóð á Jeanette, blóð á blómunum,“ sagði Goodwin fyrir réttinum.
Glotti í réttarsalnum
Daily Mail greinir frá því að þegar Mark Goodwin gaf vitnisburð hafi Martin Bunch glott og hrist höfuðið. Þá virtist hann reyna að segja Goodwin eitthvað með því að hvísla.
Goodwin hjónin höfðu reynt að bjarga hjónabandi sínu en árið 2010 viðurkenndi Jeanette fyrir Mark að hún hefði átt í áralöngu sambandi við Martin Bunch.
Var handtekinn vegna hótanna
Saksóknari málsins segir það alveg ljóst að Martin Bunch hafi ætlað að skaða eða drepa Jeanette og jafnvel eiginmann hennar, en Jeanette hafði leitað til lögreglunnar til að kæra Martin fyrir áreitni nokkru áður en hún lést. Áreitnin var talin alvarleg og fékk lögreglan henni því neyðarhnapp og átti hún að nota hann án þess að hika yrði hún vör við Bunch. Hann var færður í gæsluvarðhald en látinn laus geng tryggingu og braut ítrekað þá skilmála sem honum voru settir fyrir lausninni.
Jeanette mun hafa orðið hans vör fyrr um daginn þennan örlagaríka dag, en ekki talið það nægilega ástæðu til þess að gera lögreglu viðvart. Það var ekki fyrr en eftir að Martin hafði ráðist á hana sem hún virkjaði neyðarhnappinn.
Þegar lögreglumenn handtóku Martin Bunch neitaði hann alfarið að ræða við þá. Engua að síður segjast lögreglumenn hafa heyrt hann öskra: „Ég trúi ekki að ég hafi drepið konuna sem ég elska. Ég elskaði hana andskotinn hafi það.“
Réttarhöldin halda áfram á næstu dögum, en Daily Mail greinir frá

Hemmi Gunn fallinn frá