„Ég varð strax rosalega hrifin af honum,“ segir Úlfhildur Stefánsdóttir, heimilismaður á Sólheimum, um þær tilfinningar sem bærðust í brjósti hennar þegar hún leit unnusta sinn, Magnús Helga Vigfússon, augum í fyrsta sinn.
Þau Magnús Helgi og Úlfhildur felldu hugi saman árið 2005– bjuggu þar saman og trúlofuðu sig en árið 2008 fór að síga á ógæfuhliðina. Magnús Helgi missti vinnuna á Sólheimum og fór að upplifa sig sem „óvelkominn aðskotahlut“.
„Ég var augljóslega ekki velkominn þarna. Þeir sögðu mér að ég þyrfti að vinna fyrir þá – frítt – eða fara eitthvað annað á daginn,“ segir Magnús sem segist hafa unnið ókeypis fyrir Sólheima til ársins 2011.
Þá var hann gerður brottrækur vegna verknaðar sem hann framdi í janúar 2011. Magnús komst þá yfir Olís-kort í eigu Sólheima, tók það og notaði til að taka bensín á eigin bíl. Samtals tók hann bensín fyrir 125.000 krónur.
Auk þess að reka hann úr íbúð sinni kærðu stjórnendur Sólheimar Magnús, sem hlaut í kjölfarið tveggja ára skilorðsbundinn fangelsisdóm og sekt. Þann 27. september 2011 var hann kallaður á fund og, að eign sögn, sagt að hypja sig á brott.
Síðan þá hefur parið verið aðskilið. „Maggi er mér allt,“ sagði Úlfhildur við DV.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan


Hemmi Gunn fallinn frá