Það tók aðeins fimmtán mínútur að opinbera hvaða starfsmaður skyndibitastaðarins Burger King birti mynd af sér þar sem hann traðkaði á káli sem átti að fara í rétti viðskiptavina staðarins.
„Þetta er kálið sem þið borðið á Burger King,“ var skrifað við myndina sem birtist á vefsíðunni 4chan.
Notendum vefsíðunnar blöskraði myndin. Þeir notuðust því við GPS-upplýsingar sem fylgdu myndinni til að finna út hvar hún var tekin.
Haft var samband við fjölmiðla og innan skamms var búið að finna sökudólginn. Þeir sem tóku þátt í að góma starfsmanninn spöruðu ekki stóru orðin.
„Njóttu þess að vera rekinn,“ skrifaði einn. „Ég var að tala við yfirmanninn í gegnum síma. Hann er brjálaður,“ skrifaði annar.
Starfsmaðurinn vann á Burger King-staðnum í Mayfield í Cleveland í Bandaríkjunum. Hann var rekinn ásamt vaktstjóranum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013