Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, vinnur nú að stofnun nýs stjórnmálaflokks ásamt forritaranum Smára McCarthy og fleirum sem hafa beitt sér fyrir auknu gegnsæi og tjáningarfrelsi á Íslandi.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur sýnt flokknum áhuga og hefur íhugað að taka þátt í stofnun hans. Vinnuheiti flokksins er Píratapartýið en hann er hliðstæða svokallaðra „pirate“-flokka sem stofnaðir hafa verið víða um heim undanfarin ár.
Birgitta var einn af stofnendum Dögunar, sem er eins konar samrunaflokkur Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar og Frjálslynda flokksins, en nú virðist hún hafa siglt á önnur mið. „Birgitta hefur verið virk í starfinu hjá okkur en það er nú bara þannig þegar hreyfingar eru að rotta sig saman að það eru alltaf einhverjir sem fara eitthvert annað,“ segir Lýður Árnason, einn af stofnendum Dögunar.
„Snýst alls ekki um mig“
Birgitta segist þó bera hlýhug til Dögunar og óska flokknum alls hins besta. „Ég á bara svo mikla samleið með nördum af því ég er nörd sjálf,“ segir hún og bætir því við að Píratapartýið hafi önnur áherslumál en Dögun.
„Píratapartýið snýst alls ekki um mig,“ segir Birgitta. „Ég er bara í hópi margra sem koma að stofnun flokksins. Það er enginn foringi, ég veit ekki einu sinni hvort ég mun eða vil leiða neinn lista. Ég er hlynnt samábyrgð og vil bara að við gerum þetta saman.“ Aðspurð hvort hún vilji sitja áfram á þingi segist Birgitta líta á átta ára þingsetu sem hámark.


Hemmi Gunn fallinn frá