Aðferðir Gunnlaugs Helgasonar í þáttunum Gulli byggir, sem eru á dagskrá Sjónvarpsins, þykja oft á tíðum stórhættulegar. Þetta segir Vinnueftirlitið um þáttinn og kemur fram í athugasemd þess að einföldum vinnureglum á byggingasvæði sé ekki fullnægt.
„Þetta er þáttur um hlutina eins og þeir eru en ekki um hlutina eins og þeir ættu að vera,“ segir húsasmíðameistarinn og leikarinn Gunnlaugur Helgason í samtali við Fréttablaðið um málið. „Þessi þáttur er pínulítill íslenskur raunveruleikaþáttur og fjallar um hlutina eins og þeir eru,“ segir Gunnlaugur.
Í athugasemd Vinnueftirlitsins er gagnrýnt að Gunnlaugur hafi unnið á þaki húss án þess að hafa nokkra fallvörn. Þá var bent á glæfraleg vinnubrögð þegar mænisás var hífður þannig að fólk stóð undir, Lítil notkun á öryggishjálmum og röng notkun stiga er einnig tínt til en Gunnlaugur er ekki endilega sammála öllu því sem stendur í athugasemdinni. „Það er hægt að skoða þetta og setja út á vinnubrögðin,“ segir Gunnlaugur sem oft hefur orðið vitnir að mun meiri glannaskap. „Það er kannski erfitt að orða þetta svona, að það sé meiri glannaskapur en gengur og gerist,“ segir Gunnlaugur við Fréttablaðið.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013