„Ég hef aldrei upplifað svona veður áður,“ segir Brian Baalman, bóndi í Kansas-sýslu við fréttastofu AP. „Gömlu karlarnir ekki heldur. Ég held að þetta séu tímamót.“
Gífurlegir þurrkar eru víðsvegar í Bandaríkjunum um þessar mundir. Veðurfar er svo þurrt að landbúnaðarstofnun Bandaríkjanna hefur lýst því yfir að náttúruhamfarir séu nú í rúmlega eitt þúsund mismunandi sýslum í landinu.
Stofnunin segir ofþurrkana vera hina verstu í sögu embættisins.
Samkvæmt bandarísku haf- og veðurfarsstofnuninni (NOAA) eru áttatíu prósent landsins óvenjulega þurr. Þar af er rúmur helmingur alls meginlands Bandaríkjanna að glíma við ofþurrk. „Efsta lag jarðvegsins hefur þornað upp og rýrnun nytjaplantna, beitilanda og haga hefur verið gífurlega hröð,“ segir í skýrslu samtakanna, sem Washington Post hefur eftir.
Loftlagssérfræðingar ytra kalla þetta „skyndiþurrk“, þar sem að þurrkatíðin skall á skyndilega og af mikilli hörku. Haldi áfram sem horfir verður ástandið gífurlega alvarlegt. Veðurfarið á Íslandi hefur einnig verið óvenjulegt en hér hafa geisað miklir þurrkar. Þvert á móti hefur verið mikil væta á meginlandi Evrópu og á Bretlandi.
Í samtali við DV.is í síðustu viku sagði Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur að greinilegt sé að veðurfar á Íslandi sé að breytast: „Það eru komin sterk teikn á loft um veðurfarsbreytingarnar hér á Íslandi.“

Hemmi Gunn fallinn frá