Íslensk stjórnvöld lýsa yfir fullum stuðningi við hertar aðgerðir alþjóðasamfélagsins gagnvart Sýrlandi. Tillaga þess efnis er nú til umfjöllunar á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna að frumkvæði Bretlands, Bandaríkjanna, Frakklands, Portúgal og Þýskalands.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.
„Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ítrekar fordæmingu á framferði sýrlenskra stjórnvalda og síauknar árásir vopnaðra sveita á þeirra vegum á almenna borgara. Voðaverk stjórnvalda í Sýrlandi brjóta í bága við alþjóðleg mannúðarlög og fyrri ályktanir öryggisráðsins. Öllu ofbeldi verður að linna, hver svo sem ber ábyrgð á því,“ segir í tilkynningunni.
„Ísland hvetur því öll aðildarríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til að sameinast um ályktunardrög sem lögð hafa verið fram af fyrrgreindum fimm ríkjum og kveða á um að gripið verði til þvingunaraðgerða kjósi sýrlensk stjórnvöld að framfylgja ekki tafarlaust ályktunum ráðsins. Ísland styður áframhaldandi friðarumleitanir Kofi Annan og yfirlýsingu aðgerðahópsins um málefni Sýrlands sem samþykkt var á fundi hópsins hinn 30. júní síðastliðinn.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum