Mogginn losnar við einn milljarð

Hefði skilað hagnaði ef ekki hefði verið fyrir endurmat fasteigna

Íslandsbanki, helsti lánardrottinn útgáfufélags Morgunblaðsins afskrifaði í fyrra 994 milljónir af skuldum félagsins við bankann. Þetta má lesa úr nýútkomnum ársreikningi Árvakurs.

Nemur afskriftin rúmum helmingi af skuldum félagsins við bankann, eða um sextíu prósentum. Óvíst er hvaða skilyrðum afskriftirnar eru háðar.

Björn Valur Gíslason, alþingismaður VG, birti nýlega pistil á vefsíðunni sinni þar sem hann sagði spurningar vakna í málinu. Segir hann að það virðist sem skuldarar sitji ekki við sama borð hjá bankanum: „Úti frá séð, þá hlýtur einhver mismunun að vera við lýði þarna,“ segir Björn Valur við DV. Íslandsbanki þurfi að skýra frekar málstað sinn í málinu.

Talsmaður bankans segir hann hins vegar hafa farið eftir settum vinnuramma.

Hefði skilað hagnaði

Áhugavert er í ársreikningnum að félagið hefði skilað miklum hagnaði vegna afskriftanna ef ekki hefði verið fyrir endurmat á fasteignum samstæðunnar. Fasteignir fyrirtækisins, þar á meðal vélar, áhöld og innréttingar, lækkuðu samtals um 920 milljónir í verði. Vegna þessa tapaði félagið alls 205 milljónum, en ef endurmatið hefði verið hagstæðara hefði Árvakur skilað hundruðum milljóna í hagnað.

Það virðist sem afskriftirnar hafi verið skilyrðum háðar. Ársreikningurinn gerir ráð fyrir 335 milljóna hækkun afborgana á þessu ári. Má því færa rök fyrir því að það hafi verið eitt skilyrði bankans. Sé það rétt er heildarniðurfærsla skulda félagsins hjá Íslandsbanka rúmar 664 milljónir króna.

Áskrifendur geta séð fréttina í heild sinni með því að ýta á „Meira“

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.