Konan sem fannst nakin við Kjörgarð hefur ekki lagt fram kæru

Fjórir handteknir vegna gruns um brot gegn konunni

Konan sem fannst nakin fyrir utan Kjörgarð í miðborg Reykjavíkur á sunnudagsmorgun hefur ekki ennþá lagt fram kæru vegna málsins að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan handtók fjóra menn á vettvangi vegna gruns um að þeir hefðu brotið gegn konunni. Var þeim sleppt að loknum yfirheyrslum.

Samkvæmt heimildum DV fannst kona þar nakin fyrir utan lagermóttökuna og var kjóllinn hennar fastur undir nærliggjandi bifreið að sögn vitna. Starfsmenn sem voru í erindagjörðum við Kjörgarð hlúðu að konunni þar til lögregla kom á vettvang og var farið með hana á neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb kynferðisbrota.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.