„Nú eftir tveggja ára starfsnám hjá borginni á fullum launum er reynsluleysið ekki lengur fullnægjandi afsökun,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins um Jón Gnarr borgarstjóra. Gagnrýnt er í leiðaranum meint þekkingarleysi á borgarstjóra þegar kemur að flóknum fjármálahugtökum. Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen ritstýra Morgunblaðinu en í leiðara þriðjudagsblaðsins er Jón Gnarr gagnrýndur fyrir að tjá sig ekki um fjárhagsstöðu borgarinnar sem þarf að fara undir skoðun að mati Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.
„Borgarstjórinn sjálfur, sá sem á að bera hitann og þungann af helstu málum, er hvergi sjáanlegur þegar mikið liggur við. Stundum tjáir formaður borgarráðs sig, ef í hann næst, stundum aðstoðarmaður borgarstjóra, en borgarstjóri kemur helst ekki fram nema til að fjalla um einhver aukaatriði og setja á fót einskonar sýningu,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins og bætir við að borgarstjóra beri skylda til að taka afstöðu til mála sem mestu varða hjá borginni.
„Haldi hann áfram að vera í felum og láta aðra um mikilvægustu málefnin er augljóst að hann er ekki að sinna starfi sínu og ætti að segja því lausu,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013